Vertu hluti af MOMENTUM "klúbbnum" þar sem þú færð aðgang að öllu, vikulega hvatningu/eftirfylgni og innifalið að hefja re-start byrjun hvers mánaðar!
Segðu mér meira..
Með þessari mánarðaáskrift ertu að fá ALLT! En þú færð aðgang að:
- 28 daga ræktaræfingapakka ($280 virði)
- 28 daga öræfingapakka ($280 virði)
- 9 daga low intensity æfingapakka ($90 virði)
- 8 daga hlaupapakka ($80 virði)
- 12 daga CORE æfingapakka ($120 virði)
- 9 daga hugleiðslupakka ($90 virði)
- Matarskipulags námskeiði ($180 virði)
- Heimaskipulags námskeiði ($120 virði)
- Innifalið í áskrift er tækifæri til að skrá sig í re-start í byrjun hvers mánaðar án auka kostnaðar (hvert 3. vikna re-start er $60 viriði) ef þú vilt fá re-start á hreyfingu, matarskipulagi, hugleiðslu eða heimaskipulaginu.
- Einnig færðu vikulega eftirfylgni í formi tölvupóst eða live-inniliti á innra svæðinu þar sem upptakan vistast (ekki í boði neinsstaðar annarsstaðar). Vika 1 færðu tölvupóst þar sem við tökum smá stöðutékk á þær vikur sem eru framundan, vika 2 og 3 kem ég inn live og hvet þig áfram (eða annað sem er óskarð eftir að farið er yfir), vika 4 tökum við stöðuna hvernig hefur gengið og rúllum svona mánuð eftir mánuð.
Heildarverðmæti $1160 ef keypt er ótímabundinn aðgangur að öllu (sem þýðir að þú þyrftir að vera skráð í 38 mánuði eða 3+ ár til þess að það myndi borga sig að kaupa allt ótímabundið á verðinu sem þetta er á í dag að auki er verðmætið $60 á mánuði sem þýðir að þú ert að fá allt þetta á sama verði og eitt re-start. Mánaðaraðgangur er á $60 (ath verð getur tekið hækkunum í framtíðinni). Þetta er start verðið þar sem reynt er að koma til móts við sem flesta með því markmiði að ná þér inn í MOMENTUM kerfið þannig að þú getur fundið lífsgæðin aukast við það að smám saman vinna í því að koma sjálfsmildi, hreyfingu, matarræði, hugleiðslu og jafnvel heimaskipulagi í vikulega rútínu. Ef þú skráir þig á þessu verði breytist það ekki nema þú skráir þig úr MOMENTUM og aftur síðar ef verðið hefur hækkað.
Þú getur hoppað inn í hvenær sem er en við skráningu færðu strax aðgang. Þessari áskrift er ætlað að halda þér á brautinni, í flæðinu, í MOMENTUM þannig þegar lífið gerist og álagið tekur við ertu alltaf með eitthvað kerfi sem grípur þig og tekur á móti þér.
Ef þú ert ekki viss með hvort þetta henti þér skráðu þig í FRÍAN PRUFUAÐGANG til að sjá viðmótið og prófa.
ATH aðgangur að öllu að ofan er tímabundið við mánaðaráskrift. Þú hefur aðgang að öllu svo lengi sem þú ert í áskrift. Uppsögn á áskrift verður að berast á [email protected] svo hægt sé að uppfæra kerfið. Áskrift hefst strax við skráningu og mun PayPal draga sjálfkrafa $60 af kortinu fyrir fyrsta mánuðinn og næsta mánuð þann dags mánaðar sem þú skráðir þig (ef þú skráir þig t.d. 4. janúar hefur þú greitt fyrir 4. jan-4. feb, næsta greiðsla er dregin af kortinu 4. feb fyrir 4. feb-4.mars...). Hægt verður að færa sig yfir í Apple pay greiðslukerfi líklega í kringum september 2024. Ef þú vilt fá frekari þjónustu eins og yfirferð á matardagbók eða sérsniða æfingaráætlun byggt á æfingaplönum, live 1-on-1 coaching þá er hægt að greiða stakt auka gjald fyrir það.